Jólaglögg
Hof Menningarhús, Strandgata 12, 600 Akureyri Directions
Fri Dec 04 2026 20:30
Umskiptingar snúa aftur með þessa sprenghlægilegu jólasýningu sem snarseldist upp í fyrra!
Óstjórnlega fyndin sketsasýning þar sem ekkert er heilagt, hvorki jólaguðspjallið né jólaferðir til Tene!
Ekki missa af þessari sýningu!
Fullkomlega frumsamin norðlensk framleiðsla úr smiðju atvinnuleikhópsins Umskiptinga.
Sýningin er ekki við hæfi barna.
“
Áramótaskaupið kom
snemma í ár - drífið ykkur í leikhús og lengið lífið með
hlátrasköllum!!!
”
-Oddur Bjarni
“Ég hef ekki lengi heyrt jafnmikin
hlátur í salnum og þvílík orka og gleði í leikendum!” - Saga Geirdal Jónsdóttir
“Ég er enn með strengi í hnakkanum eftir ofreynslu hláturvöðva, vó hvað þetta
var fyndið og hressandi!” -Þórgnýr Dýrfjörð “Pör, vinahópar, mæður,
Norðlendingar og þið sem eruð í jólastressi… Takið ykkur pásu, bókið ykkur miða
og njótið þess að hlæja svolítið hressilega!” -Selma Sverris
Leikarar: Margrét Sverrisdóttir, Kolbrún Lilja Guðnadóttir, Bjarklind Ásta Brynjólfsdóttir, Sindri Swan, Hjalti Rúnar Jónsson, Fanney Valsdóttir, Diana Sus, Vigdís Halla Birgisdóttir.
Leikstjórn: Jenný Lára Arnórsdóttir.
Höfundar: Margrét Sverrisdóttir,
Kolbrún Lilja Guðnadóttir, Bjarklind Ásta Brynjólfsdóttir, Sindri Swan, Hjalti
Rúnar Jónsson, Fanney Valsdóttir, Diana Sus, Vigdís Halla Birgisdóttir, Jenný
Lára Arnórsdóttir.