Kristmundur Axel – Kominn Heim
Egilshöll, Fossaleynir 1, 112 Egilshöll Directions
Sat Jun 05 2027 20:00
Kristmundur Axel – Kominn heim
Laugardagur 5. júní 2027 ·
Egilshöll, Grafarvogi
Húsið opnar kl. 19:00
Strákurinn úr Grafarvoginum kemur heim. Kristmundur Axel var bara unglingur þegar hann sló í gegn með Komdu til baka. Það lag snerti heila þjóð og er enn eitt einlægasta lag íslenskrar rappsögu.
Síðan þá hefur hann sigrað Söngvakeppni framhaldsskólanna og gefið út lög sem hafa fylgt Íslendingum í gegnum árin, eins og Kominn heim, Sólin og Það birtir alltaf til.
Síðast þegar Kristmundur hélt tónleikana árið 2024 seldist uppþ Nú er komið að stærra kvöldi, á heimavelli í Grafarvogi, þar sem allt byrjaði.
Þetta verður kvöld fullt af einlægni, orku og lögum sem allir kunna. Svona tónleikar gerast bara einu sinni.
Tryggðu þér miða í tæka tíð.
20 ára aldurstakmark er á viðburðinn