Lífríki í dúr og moll - Hádegistónleikar
Lutheran Free Church, Fríkirkjuvegur 5, 101 Reykjavík Directions
Thu Oct 22 2026 12:00
Hádegistónleikar
Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni
fimmtudaginn 22. Október kl. 12
- Lífríki í dúr og moll -
músíkalskar andstæður
Flytjendur:
Dagbjört Andrésdóttir, sópran
Dagný Björk Guðmundsdóttir, sópran
Aladár Racz, píanó
Yfirskrift tónleikanna er Lífríki í dúr og moll: músíkalskar andstæður. Er um að ræða
fjölbreytta efnisskrá sem spannar breitt svið tónlistar, þar sem að klassísk verk og
nútímanleg tónlist mætist í lifandi samtali. Flytjendur eru Dagbjört Andrésdóttir
sópran, Dagný Björk Guðmundsdóttir sópran og Aládar Rácz, píanó.
Markmið tónleikanna er draga fram ólíkar birtingamyndir tónlistarlegs lífríkis þar sem
að skoðað er hvernig tónskáld frá ólíkum tímabilum fjalla um náttúruna hver á sinn hátt
svo úr verða litríkar andstæður. Tónleikarnir eru hugsaðir sem aðgengileg upplifun fyrir
breiðan hóp áheyrenda þar sem að lögð er áhersla á að fortíðin og samtíminn tali saman
á lifandi hátt og að áheyrendur eigi skemmtilega stund sem brýtur upp hversdaginn.
Hluti af efnisskrá:
Vatn:
Die Forelle - F.Schubert 2.00 min
Fagur fiskur í sjó - íslensk þula. 1.28 min
Blóm
Svartar Rosor - J. Sibelius 2.16min
Fyrirgefðu Fífill - Gunnar Þórðarsson 4.30 min
Tónleikarnir fara fram í Fríkirkjunni við Tjörnina og eru hluti af tónleikaröðinni Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir 2.000 kr.
Ath. ekki er tekið við greiðslukortum.