Ljóð dagsins - Poème d’un jour - Hádegistónleikar
Lutheran Free Church, Fríkirkjuvegur 5, 101 Reykjavík Directions
Thu Nov 19 2026 12:00
Hádegistónleikar
Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni
fimmtudaginn 19. Nóvember kl. 12
- Ljóð dagsins - Poème d’un jour -
Fauré og Mahler
Flytjendur:
María Jónsdóttir, sópran
Jón Sigurðar, píanó.
Um tónleika:
Sönglög eftir Gabriel Fauré og Gustav Mahler.
Tónleikarnir “Ljóð dagsins” sameina franska sönghefð og þýska síðrómantík í ljóðrænu ferðalagi um ást, missi og tilfinningalega umbreytingu. Á efnisskránni eru sönglög eftir Gabriel Fauré og Gustav Mahler, tvö áhrifamikil tónskáld sem nálgast ljóðlist og mannlega reynslu á afar ólíkan en áhrifaríkan hátt.
Í “Poème d’un jour” leiðir Gabriel Fauré áheyrendur í gegnum þrjú fíngerð og innileg ástarljóð þar sem glæsileg hljómfræði og næm textameðferð eru í forgrunni. Í “Lieder eines fahrenden Gesellen” dregur Gustav Mahler upp dramatíska og persónulega frásögn um sorg, einmanaleika og leit að sátt í náttúrunni.
Tónleikarnir skapa náið og ljóðrænt andrúmsloft þar sem rödd og píanó vinna saman að því að miðla margbreytilegum tilfinningaheimi texta og tónlistar.
Tónleikarnir fara fram í Fríkirkjunni við Tjörnina og eru hluti af tónleikaröðinni Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir 2.000 kr.
Ath. ekki er tekið við greiðslukortum.