Louisa Matthíasdóttir: Lífstaktur

Louisa Matthíasdóttir: Lífstaktur

Arion banki, Borgartún 19 - 105 Reykjavík, Ísland, Borgartún 17, 105 Reykjavík Directions

Sat Oct 10 2026 13:30

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 er þér boðið á fyrirlestur og opnun sýningar á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19.

Louisu Matthíasdóttur (1917 – 2000) þarf vart að kynna enda meðal fremstu listmálara þjóðarinnar. Á löngum og farsælum ferli sinnti hún málverkinu af mikilli einurð og öryggi og má rekja skýran og óslitinn þráð frá hennar fyrstu verkum til þeirra síðustu – einhvern lífsþrótt, eða takt, sem slær í gegnum allan ferilinn.

Sýningin hefst með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um verk Louisu. Hulda er sjálf myndlistamaður og aðstoðarrektor rannsókna við Listaháskóla Íslands. Hún stundaði framhaldsnám í myndlist í New York og bjó og starfaði þar um árabil, rétt eins og Louisa. Þær deila því ákveðnum snertifleti í þeirri borg sem varð Louisu heimili um áratugaskeið og tók þátt í að móta feril hennar sem listamanns.

Viðfangsefni Louisu voru einkum nærumhverfið, fjölskyldan, hún sjálf og hversdagslífið. Stærstan hluta ævi sinnar bjó hún í New York þar sem hún naut virðingar og velgengni sem listamaður. Íslendingar kynntust þó verkum hennar ekki að ráði fyrr en hún var komin hátt á sjötugsaldur. Tók þjóðin fljótt ástfóstri við þau, ekki síst litrík og björt málverk af íslensku landslagi og dýrum.

Á sýningunni í Arion banka verður að finna um 70 verk frá ólíkum tímabilum á ferli Louisu. Öll verkin á sýningunni koma úr einkasafni Sigurðar Arngrímssonar, en Louisa var ömmusystir hans. Í safni hans er að finna fjölmargar perlur sem bera vitni um einstaka sýn, næmni og listræna færni Louisu.

Sýningin stendur til 12. febrúar nk. og verður opin á fimmtudögum og föstudögum á opnunartíma bankans og eftir samkomulagi utan þess tíma.

Kaffi og kruðerí. Kók og Prins.

Laugardagur til lista

Öll velkomin.

Performers