Opni leikskóli Memmm á Bókasafni Hafnarfjarðar

Opni leikskóli Memmm á Bókasafni Hafnarfjarðar

Mon Sep 14 2026 12:00

"Gaman að hafa eitthvað til að hlakka til og nýta daginn í skemmtilegri rútínu..."

Opni leikskóli Memmm býður til leiks á Bókasafni Hafnarfjarðar alla mánudaga kl.12:00-14:00 og fimmtudaga 10:00-12:00. Skráning er óþörf og öll velkomin en stundirnar eru hugsaðar fyrir þau sem eru heima með lítil börn á aldrinum 0-5 ára.

Opni leikskóli Memmm eru félagasamtök sem vinna að fjölskylduvænna samfélagi. Í Opna leikskóla Memmm skapast tækifæri til þess að efla tengsl og stækka tengslanet. Reglulega er boðið upp á fræðslu er varða fyrstu ár barnsins. Dagskrárliðir eru í stuttu máli samvera, leikur, söngstund.

Komdu og vertu Memmm!

.

Dagskrána má finna á Facebooksíðu Memmm.is og Instagram. Komdu á bókasafnið og vertu Memmm!