Shjówmen – Hringleikur Fjarðabyggð

Shjówmen – Hringleikur Fjarðabyggð

Íþróttamiðstöð Reyðarfjarðar, Heiðarvegur 13, 730 Fjarðabyggð, Ísland, 730 Reyðarfjörður Directions

Sat Sep 26 2026 13:00

Shjówmenn - sirkussýning um sjómennskuna - opinn viðburður í Sláturhúsinu og á Reyðarfirði

Einhvers staðar lengst úti á ballarhafi eru tveir sirkuslistamenn að reyna að veiða hugmyndir. Þeir kasta á milli sín fiskileifum, djöggl áhöldum, hvössum augnaráðum, veiðineti og ýmsu fleira, og enginn veit hvert förinni er heitið. Í nýsirkussýningunni Shjówmenn kynnumst við tveimur trúðum sem takast á við efnisheim og menningararf sjómennskunnar með sprúðlandi leikgleði sirkuslistanna. Sýningin hentar áhorfendum á breiðum aldri og notast takmarkað við talað mál.

Höfundar: Bjarni Árnason og Nick Candy

Flytjendur: Eyrún Ævarsdóttir/Nick Candy og Bjarni Árnason

Framleiðsla: Eyrún Ævarsdóttir fyrir hönd Hringleiks

Listræn ráðgjöf: Agnes Wild

Hljóðmynd : Brett Smith