Sigga Beinteins & Grétar Örvarsson á Hótel Búðum 13. & 14. nóvember

Sigga Beinteins & Grétar Örvarsson á Hótel Búðum 13. & 14. nóvember

Hotel Búðir, Búðir, Staðarsveit, 356 Snæfellsbær Directions

Fri Nov 13 2026 16:00

Tónlistarveisla með fordrykk, kvöldverði, gistingu & morgunverði:

Tónlistarveislan á Hótel Búðum snýr aftur í þriðja sinn og hefur fest sig í sessi sem einn vinsælasti vetrarviðburður landsins. Sex helgar í röð fyllist hótelið af lifandi tónlist, einstökum mat og hlýlegri stemningu í hjarta Snæfellsness.

Helgina 13. og 14. nóvember munu ein af okkar ástsælustu tónlistarmönnum landsins, Sigga Beinteins og Grétar í Stjórninni, mæta á Hótel Búðir og flytja öll sín bestu lög sem hafa fylgt þjóðinni um árabil. Viðburðurinn verður því uppfullur af frábærri tónlist, stemningu, góðum mat og notalegri dvöl á hótelinu.

Innifalið fyrir tvo:

• Fordrykkur við komu

• Þriggja rétta kvöldverður

• Lifandi tónleikar með Siggu og Grétari í lounge rými hótelsins

• Gisting í eina nótt

• Ljúffengur morgunverður daginn eftir

Tryggðu þér sæti í tíma. Undanfarin tvö ár hafa nær allar tónlistarhelgar selst upp og eftirspurnin verið gríðarleg.

Við hlökkum til að taka á móti þér og þínum!

Fyrir fyrirtækja- og hópabókanir er hægt að hafa samband á budir@budir.is