Sindri vs Valur
Ice Lagoon höllin, Víkurbraut, 780 Höfn Directions
Fri Nov 06 2026 19:15
SINDRI VS VALUR
NÚ ÆTLUM VIÐ AÐ NÁ Í FYRSTU STIGIN!
Föstudaginn 6. nóvember fáum við Valsmenn í heimsókn í Ice Lagoon höllina og það er óhætt að segja að verkefnið sé verðugt!
Valsmenn mæta með fullt hús stiga eftir fjóra leiki, en okkar menn eru enn að bíða eftir fyrsta sigrinum í Bónusdeildinni.
Sindramenn hafa sýnt að þeir geta staðið í bestu liðum landsins.
Í síðasta leik gegn toppliði KR var stutt í óvænt úrslit þegar okkar menn töpuðu 107–102 eftir hörkubaráttu. Kaleb Higgins fór þar hamförum með 47 stig og 13 stoðsendingar!
Nú er komið að því að breyta góðri frammistöðu í stig á töfluna en til þess þurfum við alvöru stuðning !
Við ætlum að fylla Ice Lagoon höllina, láta vel í okkur heyra og sýna Valsmönnum að það er ekkert grín að mæta Sindra á Höfn!
Föstudagurinn 6. nóvember
Kl. 19:15
Ice Lagoon höllin.
Miðaverð:
3000 kr fyrir 16 ára og eldri
1000 kr fyrir 13-15 ára
Frítt fyrir 12 ára og yngri.
12 ára og yngri verða að vera í fylgd með fullorðnum.
Tökum fjölskylduna með - mætum rauð og peppuð - fyllum stúkuna og keyrum þetta partý áfram !
FAN ZONE Á PAKKHÚSINU FRÁ KL. 16:00!
Við hitum upp með alvöru Sindrastemningu!
Hamborgari á 2.000 kr.
Öl á 1.000 kr.
Gamlar sindratreyjur til sölu!
Svo fjölmennum við í Ice Lagoon höllina og styðjum okkar menn til sigurs!
Valsmenn mega koma ósigraðir til Hafnar – en þeir þurfa ekki að fara þannig heim!!!
ÁFRAM SINDRI! ÁFRAM KÖRFUBOLTI