Spacestation
Austurbæjarbíó, Snorrabraut 37, 105 Reykjavík Directions
Fri Oct 23 2026 20:00
Orka og Tuborg Lite kynna:
Hljómsveitin Spacestation fagnar útgáfu nýrrar plötu, „Who Killed Spacestation?“, með stórum útgáfutónleikum í Austurbæjarbíói 23. október. Platan kemur út 10. september og markar nýjan kafla í sögu sveitarinnar, uppgjör við fortíðina, endurfæðingu og allt það sem hefur mótað Spacestation síðustu ár.
Frá stofnun sveitarinnar árið 2021 hefur Spacestation skapað sér sterkan sess í íslensku tónlistarlífi. Sveitin hefur sent frá sér verðlaunaða tónlist, leikið víða um Evrópu og komið fram á hátíðum á borð við Iceland Airwaves, The Great Escape, SXSW, Reeperbahn og Waves Vienna. Á undanförnum árum hefur hún þróast úr ungri Reykjavíkursveit yfir í öfluga tónleikasveit sem hefur vakið athygli bæði hér heima og erlendis.
Tónlist Spacestation svífur á mörkum draumapopps, shoegaze, indírokks og hrárrar rokktónlistar. Lögin einkennast af grípandi laglínum, þéttum gítarveggjum og kraftmikilli sviðsframkomu þar sem óreiða og nákvæmni mætast. „Who Killed Spacestation?“ fangar þessa þróun og ferðalag sveitarinnar undanfarin ár. Frá litlum tónleikastöðum í Reykjavík yfir í tónleikaferðir og hátíðir erlendis. Platan er stærsta og metnaðarfyllsta verk hennar til þessa.
Á útgáfutónleikunum verður nýja platan flutt í sérstökum búningi ásamt eldri lögum úr ferli sveitarinnar. Umgjörðin verður stærri en nokkru sinni fyrr og kvöldið sannkölluð hátíð fyrir nýtt tímabil í sögu Spacestation.
Hver drap Spacestation? Komið og komist að því í Austurbæjarbíói 23. október.