Syngjum saman í Hannesarholti með Þórunni Björnsdóttur
Hannesarholt, Grundarstigur 10, 101 Reykjavík Directions
Sat Oct 03 2026 14:00
Syngjum saman í Hannesarholti laugardaginn 3.október kl.14 með Þórunni Björnsdóttur kórstjóra með meiru. Textar á tjaldi og allir taka undir. Allar kynslóðir velkomnar. Frítt inn. Streymt verður frá söngstundinni.
Tóta Björns, eins og hún er oftast kölluð, stýrði kórstarfi í Kársnesskóla í yfir fjörtíu ár og var öflug í uppbyggingu barnakórastarfs á Íslandi. Hún hefur líka verið liðtæk í ýmiskonar kórstarfi bæði hérlendis og erlendis og er enn að. Verið velkomin öll sem eitt að slást í hópinn hjá Tótu í Hanneesarholti.
Veitingahúsið í Hannesarholti er opið frá 11.30-16.