Teiknimyndaránið - Útgáfuhóf á Akureyri!
Penninn Eymundsson, Hafnarstræti 91-93, 600 Akureyri Directions
Tue Nov 10 2026 16:00
HÚMOR! SPENNA! SÚRSÍLD!
Teiknimyndaránið, glæný og galsafull gleðisprengja eftir Ævar Þór Benediktsson með myndum eftir Rán Flygenring, er komin út og því verður fagnað í Pennanum Akureyri þriðjudaginn 10. nóvember á milli kl. 16:00- 17:00!
Besti vinur Halla, hann Tóti, er að flytja til Svíþjóðar og vinirnir munu ekki einu sinni ná að horfa saman á framhaldið af uppáhaldsteiknimyndinni sinni, Bankaráninu. Ja, ekki nema Halli nái að fremja hið fullkomna rán ...
Ævar les upp úr bókinni og áritar.
Bókamerki og plaköt fyrir alla!
Sjáumst fyrir norðan!