Þjóðlistaþing: Hvað er á seyði?
Edda, Arngrímsgata 5, 107 Reykjavík Directions
Sun Sep 13 2026 13:30
Hvað eru „þjóðlistir“ og hver er staða þeirra hér á landi og í alþjóðlegu samhengi? Hvert er hlutverk áhugafólks og sérfræðinga? Hvaða hlutverki gegna sögur og söngur í þjóðfræðisöfnum? Hvernig tengja lifandi hefðir fortíð og nútíð? Hvað getur gervigreindin gert fyrir okkur?
Þessar spurningar tökum við til umræðu á Þjóðlistaþinginu Hvað er á seyði? og opnum þar með Vöku þjóðlistahátíðina 2026. Við leiðum saman þjóðlagatónlistarfólk, handverksfólk, þjóðdansara, kvæðamenn og fræðafólk, auk fulltrúa annarra hópa sem tengjast þjóðlistum á Íslandi.
Dagskrá
Söngurinn og sögurnar
Rósa Þorsteinsdóttir, þjóðfræðingur hjá Árnastofnun og stjórnarmaður í Kvæðamannafélaginu Iðunni
Milli fortíðar og nútíðar: Lifandi hefðir, þjóðhættir og þjóðlistir
Sigurlaug Dagsdóttir, sérfræðingur á Þjóðháttasafni Þjóðminjasafns Íslands
Þjóðlistir í norrænu samhengi
Atli Freyr Hjaltason, þjóðfræðingur og þjóðdansari
Mannleg samskipti – það sem gervigreindin getur ekki gert fyrir okkur
Sigurður Halldórsson, prófessor við tónlistardeild Listaháskóla Íslands
Í lok málþingsins fara fram pallborðsumræður um stöðu þjóðlista. Auk fyrirlesara taka þar þátt Helga Maureen Gylfadóttir, deildarstjóri hjá Borgarsögusafni Reykjavíkur, Bendt Pedersen, formaður Þjóðdansafélags Reykjavíkur, og Hilmar Hjartarson, harmonikkuleikari og fyrrverandi formaður Félags harmonikuunnenda í Reykjavík.
Umræðustjóri er Kristinn Schram, dósent í þjóðfræði við Háskóla Íslands.
//
VAKA þjóðlistahátíð fer fram dagana 13.– 19. september 2026 í Kópavogi. Á hátíðinni mætast tónlist, dans, handverk, sagnalist og kveðskapur í fjölbreyttri dagskrá fyrir forvitna gesti á öllum aldri.
VAKA leggur áherslu á að gera sem flestum kleift að sækja viðburði hátíðarinnar. Því eru í boði þrír mismunandi verðflokkar á flesta viðburði og velur hver gestur það verð sem hentar best.
Tryggið ykkur hátíðarpassa sem veitir ykkur aðgang að öllum viðburðum hátíðarinnar.
Allar upplýsingar um hátíðina má finna á www.vakareykjavik.is og á samfélagsmiðlum Vökufélagsins.
Nánar um hátíðarviku:
https://www.facebook.com/events/2881917765475464