Týndar leiðir á Þingvöllum: Hraunfólkið í Skógarkoti

Týndar leiðir á Þingvöllum: Hraunfólkið í Skógarkoti

Sun Sep 20 2026 13:00

Nú haustar að á heiðum og húmar í skóg. Styttist því óðum í hina árlegu haustlitagöngu þjóðgarðsins á Þingvöllum, sem að þessu sinni verður haldin sunnudaginn 20. september klukkan 13:00.

Gunnar Grímsson, landvörður og fornleifafræðingur, leiðir gesti um tvær gamlar gönguleiðir í Þingvallaskógi sem hafa fyrir löngu fallið í gleymskunnar dá. Önnur þeirra ber ekkert nafn og liggur um örnefnið Skyrklif en hin kallast Miðhólagata. Hægt var að rekja leiðirnar í kjölfar umfangsmikillar kortlagningar sem stendur nú yfir í þjóðgarðinum.

Gestir setja sig í spor hraunfólksins í Þingvallasveit sem bjó í vatnslausu hrauni í námunda við hyldjúpar gjár. Margar persónur munu koma við sögu, en sérstök áhersla verður lögð á börnin í Skógarkoti og minningar þeirra um horfinn heim. Stuðst verður við áður óbirtar heimildir sem varpa glænýju ljósi á staðinn.

Gönguferðin hefst fyrir framan þjónustumiðstöðina á Þingvöllum kl. 13:00. Gengið er til suðurs eftir ónefndri götu sem gæti verið ein elsta leiðin til Þingvalla; liggur hún um svokallað Skyrklif og fram hjá Kolsgjá sem getið er í Íslendingabók. Þaðan er ferðinni heitið austur að eyðibýlinu Skógarkoti. Boðið verður upp á léttar veitingar í rústum bæjarins og þar verður greint frá daglegu lífi í hjarta Þingvallahrauns. Að því loknu er gengið til baka um Nýju-Hrauntúnsgötu og Miðhólagötu.

Gangan er hringleið, um sex og hálfur kílómetri að lengd og tekur um það bil þrjár klukkustundir. Hún er tiltölulega auðveld yfirferðar og hallalítil en götubotninn er víða ójafn. Best er að koma í góðum skóm og með nesti og vatn, enda er Þingvallahraun nær vatnslaust.

Gangan er partur af evrópskum menningarminjadögum sem Minjastofnun Íslands heldur utan um.