Uppland Hafnarfjarðar: Kaldá og Gjárnar

Uppland Hafnarfjarðar: Kaldá og Gjárnar

Helgafell, , Hafnarfjörður Directions

Mon Sep 14 2026 17:00

Dags: 14. sept 2026, kl. 17:00

Lengd göngu: 4 km

Hækkun: lítil sem engin

Tími: 1.5 klst

Upphafsstaður: Bílastæði á bílastæði við Helgafell

https://maps.app.goo.gl/hcgracqXjxSzmVmD9

Leiðarlýsing: Gangan hefst á bílastæðinu við Helgafell og gengið að hinni dularfullu Kaldá og vatnsbóli Hafnfirðinga. Þaðan fylgjum við árfarvegi árinnar í vesturátt, framhjá sumarbúðum KFUM og K í Kaldárseli, þangað sem áin hverfur í hraunið. Því næst höldum við í náttúruvættið Gjárnar meðfram Kaldárhrauni en Kaldárhraun og Gjárnar, sem eru stórmerkilegar hellu­hrauns­myndanir og fagrar klettamyndanir í vestari hrauntröðinni frá hinni kunnu eldstöð Búrfelli, voru friðlýstar 2009 sem náttúruvætti í tilefni af 100 ára afmæli Hafnarfjarðarbæjar árið áður.

Gangan er liður í röð gönguferða í Reykjanesfólkvang sem Landvernd og Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands standa fyrir. Tilefnið er 50 ára afmæli fólkvangsins og að vekja athygli á tilgangi hans og þeim útivistarkostum sem fólkvangurinn geymir.

Performers