Útgáfuhóf: Varkár eftir Margréti Bjarnadóttur
Tjarnarbíó Theater, Tjarnargata 12, 101 Reykjavík Directions
Fri Sep 11 2026 17:00
Í tilefni útgáfu bókarinnar Varkár eftir Margréti Bjarnadóttur verður blásið til útgáfufagnaðar í Tjarnarbíó, föstudaginn 11. september kl 17:00.
Höfundur segir frá þessu persónulega en um leið ljóðræna verki, les upp og áritar bækur, léttar veitingar verða í boði og bókin á sérstöku útgáfutilboði.
Við hlökkum til að sjá ykkur!
Um Varkár:
„Tilhugsunin um að það verði ekkert bergmál. Að líf mitt verði eins og að klappa einu sinni saman lófum í hljóðeinangruðu herbergi.“
Varkár er persónulegt verk um þrána eftir því að eignast barn og um tilveruna sem bíður ekki eftir neinum. Í stuttum, áhrifamiklum brotum fléttast saman minningar, hversdagsleg augnablik, ástin og missir í frásögn sem er í senn átakanleg og á köflum óþægilega fyndin, en sýnir okkur mennskuna sem birtist þegar lífið lætur ekki að stjórn.
Margrét Bjarnadóttir er fædd í Reykjavík árið 1981. Hún vinnur innan ólíkra forma og miðla, einkum á sviði dans, myndlistar og skrifa. Hún er menntuð sem danshöfundur frá ArtEZ listaháskólanum í Hollandi og hefur lokið meistaranámi í ritlist við Háskóla Íslands. Verk hennar hafa verið sýnd á hátíðum, söfnum og í leikhúsum víða um heim. Margrét hefur áður sent frá sér bækurnar Orðið á götunni og Líf mitt, til dæmis (dagbækurnar 1998–2002). Varkár er hennar fyrsta skáldverk.