Vatnsendahlaup HK 2026
Kórinn, Vallakór 12-14, 203 Kópavogur Directions
Thu Sep 10 2026 18:00
Vatnsendahlaup HK verður haldið í þriðja sinn fimmtudaginn 10. september 2026 kl. 18:00. Hlaupið hefst við Kórinn, Vallakór 12 í Kópavogi.
Hlaupið er 10 km utanvegahlaup um fjölbreytta stíga við jaðar Heiðmerkur, þar sem hlauparar fá tækifæri til að kynnast leiðum sem fáir hafa hlaupið áður. Boðið verður upp á tímatöku og drykkjarstöð er á leiðinni.
Upplýsingar
Staðsetning: Kórinn – Vallakór 12, 203 Kópavogur
Tímasetning: Fimmtudaginn 10. september 2026 kl. 18:00
Vegalengd: 10 km
Tímataka: Já
ITRA: Keppendur fá ITRA-stig fyrir hlaupið.
Hlaupleið
Hlaupið hefst við Kórinn og liggur upp að Guðmundarlundi og áfram að Vatnsendaborg. Þaðan tekur við fjölbreytt leið um stíga við jaðar Heiðmerkur, niður í átt að Elliðavatni. Leiðin liggur síðan aftur upp Vatnsendahlíð og niður að Kórnum þar sem hlaupið endar.
https://www.strava.com/routes/3231585175049286530
Verðlaun
Verðlaun verða veitt fyrir efstu þrjú sætin í karla- og kvennaflokki, auk útdráttarverðlauna.
Hlaupagögn
Hægt verður að sækja hlaupagögn í Hlaupár, Fákafeni 11, frá kl. 11:00–18:00 alla vikuna fyrir hlaupið.
Skráning
Skráningargjald: 3.900 kr.
Ungmennagjald. 1.500 kr.
Skráningargjöld eru ekki endurgreidd. Hægt verður að gera nafnabreytingar allt þar til hlaupið hefst.
https://netskraning.is/vatnsendahlaupid/
Skráningu lýkur 10. september 2026 kl. 16:00, eða fyrr ef hlaupið fyllist.
Innifalið í skráningu
Keppnisnúmer
Tímataka
Brautarvarsla
Drykkjarstöð með Powerade, vatni, banana o.fl.
Salernisaðstaða fyrir og eftir hlaup í Kórnum
Skipuleggjendur
Hlaupahópur HK
Netfang: orvars@gmail.com
Hlaupastjóri: Örvar Steingrímsson
Sími: 665 6217