Verðlaunaafhending: Sólfaxi — íslensku barnabókaverðlaunin 2026
Forlagið útgáfa, Fiskislóð 39, 101 Reykjavík Directions
Tue Sep 15 2026 17:00
Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin í Bókabúð Forlagsins, þriðjudaginn 15. september, þar sem Sólfaxi — íslensku barnabókaverðlaunin 2026 verða afhent við hátíðlega athöfn og sigurbókin í ár afhjúpuð.
Sólfaxi er árleg viðurkenning fyrir myndríka barnabók, en að verðlaununum standa fjölskylda Ármanns Kr. Einarssonar, Barnavinafélagið Sumargjöf og Forlagið. Markmiðið með Sólfaxa er að efla íslenskar barnabækur þar sem myndir og texti mynda sterka og jafna heild, allt frá myndabókum fyrir yngstu lesendur til myndasagna fyrir unglinga. Komið og fagnið nýjum sögum og íslenskri barnabókmenningu með okkur! 🌟