Vinakaffi í Hlein
Hlein, Hólabraut, 630 Hrísey
Wed Oct 07 2026 16:00
Kvenfélag Hríseyjar býður öllum í vinakaffi í Hlein miðvikudaginn 7. október kl. 16:00, í tilefni af Viku einmanaleikans.
Komdu og eigðu notalega stund með góðu fólki. Við drekkum kaffi, spjöllum og njótum þess að vera saman. Allir eru velkomnir, ungir sem aldnir, hvort sem þú ert Hríseyingur, gestur eða farfugl. Það þarf ekkert að taka með sér nema sjálfan sig.
Þetta er í annað sinn sem Kvenfélag Hríseyjar heldur vinakaffi í Viku einmanaleikans. Hún er vitundarvakning Kvenfélagasambands Íslands og kvenfélaganna gegn einsemd og einmanaleika. Markmiðið er að tengja fólk, og stundum þarf ekki meira til en kaffibolla og góðan félagsskap.
Hlökkum til að sjá þig!