Vitringarnir 3 - 2026
Harpa | Silfurberg, Austurbakki 2, 101 Reykjavik Directions
Fri Dec 04 2026 19:00
Vinirnir og gullbarkarnir Eyþór Ingi, Friðrik Ómar og Jógvan Hansen setja allt á hliðina í Hörpu á aðventunni. Þeir eru ólíkir og alls ekki alltaf sammála. Enginn veit með fullri vissu hver þeirra ræður. En þegar þeir þrír standa saman á sviði gerast einhverjir töfrar sem erfitt er að útskýra.
Saman lofa þeir gríni, grúvi og gæsahúði!
(Jógvan getur ekki fallbeygt orðið „gæsahúð“.)
Þeir verða þó alls ekki einir á sviðinu. Ingvar Alfreðsson stjórnar hljómsveit hússins og svo gætu einhverjir gestir bankað á dyr – eins og gerist gjarnan á aðventunni. Hver veit?
Sem fyrr er sýningin ekki við hæfi miðaldra kvenna.
Skráðu þig á póstlista Vitringanna á https://www.vitringarnir3.is/
Fyrir hópabókanir, 21 manns eða fleiri, sendið fyrirspurn á info@betlehem.is.
Forsala fyrir póstlistann hefst 28. ágúst kl. 11:00.
Almenn miðasala hefst 1. september kl. 11:00.
www.vitringarnir3.is