Draumey Aradóttir
About
Fyrir Draumey er ritun leið til að lifa - og lifa af. Hún hefur skrifað frá því henni var fyrst rétt blað og blýantur í hönd. Þar má nefna sögur og ljóð, sendibréf og ferðapistla auk þeirra barna- og unglingabóka sem taldar eru upp í ritaskrá. Ljóð hennar hafa birst víða, m.a. í Lesbók Morgunblaðsins, Tímariti Máls og menningar og í íslenskum og sænskum safnbókum ásamt fleiri skáldum og rithöfundum. Ljóð eftir Draumey hafa verið þýdd og birt á ensku, þýsku, frönsku, sænsku og hollensku.
Sér til yndis syngur Draumey og dansar, gengur um skóga og yfir hraun, horfir á hafið og lætur sig dreyma. Lífsspeki hennar er enda að draumar eru til alls fyrstir og að við veljum viðhorf okkar, viðbrögð og tilfinningalega líðan með því hvernig við hugsum um þá atburði og aðstæður sem við mætum á lífsför okkar.