Ef þú hlustar - Útgáfuhóf - Orðskjálfti #6
Mengi, Óðinsgata 2, 101 Reykjavík Directions
Wed 19.08.2026 20:00
Orðskjálti boðar til útgáfuhófs!
Verið hjartanlega velkomin í útgáfuhóf ljóðasafnsins Ef þú hlustar sem haldið verður í Mengi 19. ágúst kl. 20. Í Ef þú hlustar er 6. bindið í ritröð Orðskjálfta og inniheldur bestu norrænu ljóðlist ársins 2025 að mati ungra ljóðunnenda á Norðurlöndunum. Útgáfunni verður fagnað með ljóðalestri og léttum veitingum.
Bókin hefur nú þegar komið út í Danmörku, Svíþjóð og Noregi og verður fáanleg á tilboðsverði í Mengi. Þar að auki verða eldri bindi ljóðasafna Orðskjálfta til sölu.
Íslensk skáld í Ef þú hlustar eru:
Anna Rós Árnadóttir
Birgitta Björg Guðmarsdóttir
Draumey Aradóttir
Guðmundur Andri Thorsson
Gunnhildur Þórðardóttir
Margrét Gísladóttir
Natasha S.
Sunna Dís Másdóttir
Þórarinn Eldjárn
Þríeykið í Listanes forlagi: Katla Björk Gunnarsdóttir, Tómas van Oosterhout og Þórhallur Runólfsson
Að baki verkefninu standa systurfélög Orðskjálfta á hinum Norðurlöndunum og um útgáfuna sér danska félagið Ordskælv. (http://www.ordskaelv.org/).
Verkefnið hlaut þýðingarstyrk frá Reykjavík Bókmenntaborg
Markmið Orðskjálfta er að hvetja ungt fólk til þess að taka virkan þátt í bókmenntalífinu og nýta bókmenntir og ritlist til tjáningar.
Performers
-
OrðskjálftiOrðskjálfti stendur fyrir ritsmiðjum fyrir börn, unglinga og ungt fólk. Allir hafa sögu að segja
-
Anna Rós Árnadóttir
Young poet with a newly published poetry book
-
Birgitta Björg Guðmarsdóttir
Author signing and reading from her book Moldin heit.
-
Draumey AradóttirFyrir Draumey er ritun leið til að lifa - og lifa af. Hún hefur skrifað frá því henni var fyrst rétt blað og blýantur í hönd. Þar má nefna sögur og ljóð, sendibréf og ferðapistla auk þeirra barna- og unglingabóka sem taldar eru upp í ritaskrá. Ljóð hennar hafa birst víða, m.a. í Lesbók Morgunblaðsins, Tímariti Máls og menningar og í íslenskum og sænskum safnbókum ásamt fleiri skáldum og rithöfundum. Ljóð eftir Draumey hafa verið þýdd og birt á ensku, þýsku, frönsku, sænsku og hollensku.
Sér til yndis syngur Draumey og dansar, gengur um skóga og yfir hraun, horfir á hafið og lætur sig dreyma. Lífsspeki hennar er enda að draumar eru til alls fyrstir og að við veljum viðhorf okkar, viðbrögð og tilfinningalega líðan með því hvernig við hugsum um þá atburði og aðstæður sem við mætum á lífsför okkar.
-
Guðmundur Andri Thorsson
Author discussing his book
-
Gunnhildur ÞórðardóttirArtist
-
Margrét GísladóttirFramkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði
-
Natasha S.
Rithöfundur
-
The summer books with Sunna Dís
Writer and a Quiz nerd
-
Þórarinn EldjárnRenowned Icelandic author.